Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007
30.3.2007 | 20:31
Verða þrír smáflokkar á þingi?
Vægi minnstu flokkanna að aukast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.3.2007 | 10:55
VÍS stjórn í burðarliðunum?
Þá er komin fram fyrsta skoðanakönnunin eftir að framboð Íslandshreyfingarinnar kom fram. Það stefnir í það sem ég spáði að flokkurinn fengi um 5-6% fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn fer mest niður, um 3% meðan VG fer niður um 2.3%. Framsókn festist í sessi sem einnar tölu flokkur og F er hægt og sígandi að þurkast út. Virðist að veiðiförin út í hið grugguga vatn útlendingafordóma reynast flokknum dýrkeypt. Eitthvað umhverfisverndarfylgi mun fara frá VG til Í, en vinstriflokkarnir V og S sameiginlega virðast halda sínu sæmilega vel. Það getur þó enn margt gerst í kosningabaráttunni.
Bestu fréttirnar við þessa könnun eru þær að samkvæmt henni eru Vinstrihreifingin, Samfylkingin og Íslandshreyfingin með meirihluta á þingi, 16+14+3 þingmenn. Ef þetta yrðu úrslit kosninganna þá gæti næsta ríkisstjórn litið eitthvað svona út:
Forsætisráðherra: Steingrímur J. Sigfússon
Utanríkisráðherra: Össur Skarphéðinsson
Fjármálaráðherra: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Umhverfisráðherra: Ómar Ragnarsson
Viðskipta og iðnaðarráðherra: Ögmundur Jónasson
Menntamálaáðherra: Katrín Jakobsdóttir
Félagsmálaráðherra: Margrét Sverrisdóttir
Sjávarútvegsráðherra: Ágúst Ólafur Ágústsson
Dómsmálaráðherra: Atli Gíslason
Landbúnaðarráðherra: Björgvin Sigurðsson
Heilbrigðisráðherra: Þuríður Backman
Samgönguráðherra: Jóhanna Sigurðardóttir
Þetta yrði örugglega mjög góð ríkisstjórn.
Íslandshreyfingin með 5% fylgi samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.3.2007 | 14:36
Kraðak á miðjunni
Þorgerður: Þátttaka okkar forsenda umburðarlyndrar miðjustjórnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.3.2007 | 13:50
Íslandshreyfingin
Kynna framboð Íslandshreyfingarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.3.2007 | 13:50
Íslandshreyfingin
20.3.2007 | 13:56
Hvað með meðalþyngd barna á konu?
Barnsfæðingum fjölgaði á síðasta ári og frjósemi kvenna vex | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt 24.3.2007 kl. 15:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2007 | 14:39
Gerðu eins og ég segi, ekki geri
Nú hafa bretar ákveðið að eyða 20 milljörðum punda, eða 260 milljörðum íslenskra króna í að endurnýja kjarnorkuflota sinn. Þetta gera þeir þrátt fyrir að þeir viðurkenni að landinu stafi engin ógn sem kjarnorkuvopnin gætu "komið að notum". Hver er þessi hugsanlega "framtíðarógn"? Ef hryðjuverkamenn komast yfir kjarnorkuvopn, (sem er auðvitað þeim mun auðveldara eftir því sem fleiri vopn eru til), hvernig virka bresk kjarnorkuvopn sem "fæling" á að snarbrjálaðir hryðjuverkamenn noti slík vopn. Á að hóta að sprengja upp heimaborg hryðjuverkamannsins? Þeir sem frömdu óhæfuverkin í London 2005 voru flestir fæddir og uppaldir í Leeds, á að hóta að sprengja upp Leeds? Það segir sig sjálft að kjarnorkuvopn eru fáránleg "fæling" gegn hryðjuverkamönnum. Og hvaða ríkjum gætu slík vopn hugsanlega virkað sem "fæling" gegn? Það land sem í dag er líklegast til að nota kjarnorkuvopn eru Bandaríkin. Er bresku vopnin hugsuð gegn BNA?
Það versta við þessa ákvörðun er að hún gefur vafasömum ríkisstjórnum grænt ljós á þróun slíkra vopna. Það er gefið mál að Íran stafar ógn frá Bandaríkjunum. Er þá ekki skiljanlegt að íransstjórn líti til kjarnorkuvopna sem fælingarvopna? Nú eru flestir sammála að kjarnorkuvopn í höndum írana gætu orðið stórhættuleg í þeirri púðurtunnu sem miðausturlönd eru. En hljómar það ekki falskt af bretum að krefjast þess að íranir (sem vissulega stafar ógn af erlendum her) hætti þróun kjarnorkuvopna, meðan þeir sjálfir eyða hundruðum milljarða í kjarnorkuvopn fyrir hugsanlega ógn einhverntíman í framtíðinni.
Breska kjarnorkuvopnabúrið verður endurnýjað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.3.2007 | 18:07
Fyrsta bloggfærsla
Jæja, þá er maður loksins búinn að láta verða af því að stofna bloggsíðu heima. Er búið að vera á "to do" listanum um nokkurn tíma. Gott að nota tækifærið núna fyrir kosningar, enda stefnir loksins í það að við losnum við ríkisstjórnarómyndina og fáum vinstristjórn. Svo hef ég auðvitað voða gaman af því að rífast um stjórnmál, þannig að nú er rétta tækifærið að stofna bloggsíðu!
Ég er nú búinn að búa erlendis í yfir 15 ár, síðan ég fór í nám, þannig að ég get sagt að ég sjái ástandið heima (takið eftir ég nota enn orðið "heima" um Ísland) að hluta með gests augum. Ég mun auðvitað blogga um stjórnmálin á Íslandi, í Bretlandi þar sem ég nú bý og annarstaðar eftir þörfum, sérstaklega í Bandaríkjunum þar sem ég þekki vel til þar síðan ég bjó í Washington. Svo er konan líka bandarísk þannig að það eru hæg heimatökin.
Svo er það bloggnafnið. Þjálfi skal það vera. Þjálfi er bróðir Röskvu, sem voru eina mannfólkið sem komst lifandi til Valhallar í goðasögunum. Það er auðvitað löngu kominn tími á að mannfólkið taki við af goðunum í Valhöll. Þegar ég var í háskólanum á Íslandi þá stofnuðum við nokkrir vinstrimennirnir Röskvu, samtök félagshyggjufólks í HÍ: Margir framámenn vinstrimanna í stjórnmálunum í dag koma úr Röskvu. Félagið var stofnað til að gera veg vinstrimanna sem mestan meðal stúdenta, í Röskvu sameinuðust vinstrimenn í háskólanum. En stundum þarf Röskva á hjálp frá stóra bróður að halda. Stundum villist hún af réttri leið. Þá er alltaf gott að eiga að stóran bróður sem vill henni allt það besta. Þá er gott að eiga stóran bróður sem segir henni hlutina eins og þeir eru. Það mun Þjálfi reyna að gera.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007