Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Verða þrír smáflokkar á þingi?

Samkvæmt þessari skoðanakönnun stefnir í það að það verði þrír smáflokkar á þingi, auk stóru flokkanna Sjálfstæðisflokksins, VG og Samfylkingarinnar. Það kæmi mér ekki á óvart að þrír 5-10% flokkar, Framsóknarflokkurinn, Frjálslyndi Flokkurinn og Íslandshreyfingin myndu festa sig í sessi og vera róterandi á þessu einstölu bili í kosningum. Framsóknarflokkurinn stefnir í það að vera stabíll smáflokkur, svipað og gömlu bændaflokkarnir í Svíþjóð og Noregi sem hafa verið á þessu 5-10% fylgisbili lengi. Þróunin er bara aðeins seinni hér á Íslandi. Það sem er líka öðruvísi hér á landi er að vinstrisósíalískur flokkur er mun sterkari en á hinum norðurlöndunum. Þetta hefur hins vegar verið staðreynd lendi á Íslandi. Mér sýnist við vera að færa okkur úr 4 flokka kerfi yfir í 3+3 kerfi, þ.e. 3 stórir flokkar og 3 smáflokkar. 
mbl.is Vægi minnstu flokkanna að aukast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VÍS stjórn í burðarliðunum?

Þá er komin fram fyrsta skoðanakönnunin eftir að framboð Íslandshreyfingarinnar kom fram. Það stefnir í það sem ég spáði að flokkurinn fengi um 5-6% fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn fer mest niður, um 3% meðan VG fer niður um 2.3%. Framsókn festist í sessi sem einnar tölu flokkur og F er hægt og sígandi að þurkast út. Virðist að veiðiförin út í hið grugguga vatn útlendingafordóma reynast flokknum dýrkeypt. Eitthvað umhverfisverndarfylgi mun fara frá VG til Í, en vinstriflokkarnir V og S sameiginlega virðast halda sínu sæmilega vel. Það getur þó enn margt gerst í kosningabaráttunni.

Bestu fréttirnar við þessa könnun eru þær að samkvæmt henni eru Vinstrihreifingin, Samfylkingin og  Íslandshreyfingin með meirihluta á þingi, 16+14+3 þingmenn. Ef þetta yrðu úrslit kosninganna þá gæti næsta ríkisstjórn litið eitthvað svona út:

Forsætisráðherra:                             Steingrímur J. Sigfússon

Utanríkisráðherra:                            Össur Skarphéðinsson

Fjármálaráðherra:                            Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

Umhverfisráðherra:                          Ómar Ragnarsson

Viðskipta og iðnaðarráðherra:          Ögmundur Jónasson

Menntamálaáðherra:                        Katrín Jakobsdóttir

Félagsmálaráðherra:                        Margrét Sverrisdóttir

Sjávarútvegsráðherra:                    Ágúst Ólafur Ágústsson

Dómsmálaráðherra:                         Atli Gíslason

Landbúnaðarráðherra:                    Björgvin Sigurðsson

Heilbrigðisráðherra:                         Þuríður Backman

Samgönguráðherra:                        Jóhanna Sigurðardóttir

Þetta yrði örugglega mjög góð ríkisstjórn. Smile


 

 

 


mbl.is Íslandshreyfingin með 5% fylgi samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kraðak á miðjunni

Það vantar ekki miðjuflokka í stjórnmálin í dag. Nú er sjálfur Sjálfstæðisflokkurinn búinn að gefast upp á hægristefnu og skilgreinir sig nú sem miðjuflokk. Fyrir á miðjunni eru S, F og Í, auk þess sem B skilgreinir sig sem miðjuflokk þó nær væri að tala um Framsóknarflokkinn sem utan vinstri hægri skilgreininga, enda er flokkurinn stólaflokkur. Valið í kosningunum virðist því nú vera á milli eins stórs vinstriflokks, VG og kraðak flokka á miðjunni, þar sem hver höndin er uppi á móti annari. Valið er þá á milli sterks vinstriflokks eða miðjuflokkasundrungar. 
mbl.is Þorgerður: Þátttaka okkar forsenda umburðarlyndrar miðjustjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslandshreyfingin

Jæja, þá er það loksins komið, framboð Ómars og Margrétar, með prófkjaralúserinn Jakob Frímann í pakkanum. Einhvernvegin hef ég það á tilfinningunni að mómentið fyrir þessu framboði sé farið. Ómar og Margrét gætu komist inn á þing, sem væri ekki svo slæmt þar sem þau eru kraftmiklir einstaklingar bæði tvö sem gaman væri að sjá á þingi. Hins vegar held ég að framboðið endi ekki með meira en svona 5-6% fylgi, tekið jafnt frá stjórnaraflokkunum og stjórnarandstöðu. Til þess að þessi atkvæði falli ekki dauð niður þar framboðið að ná inn kjördæmakjörnum þingmanni í Reykjavík eða kraganum. Það er alls ekki gefið, en Ómar gæti náð í því kjördæmi þar sem hann fer í framboð.
mbl.is Kynna framboð Íslandshreyfingarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslandshreyfingin

Jæja, þá er það loksins komið, framboð Ómars og Margrétar, með prófkjaralúserinn Jakob Frímann í pakkanum. Einhvernvegin hef ég það á tilfinningunni að mómentið fyrir þessu framboði sé farið. Ómar og Margrét gætu komist inn á þing, sem væri ekki svo slæmt þar sem þau eru kraftmiklir einstaklingar bæði tvö sem gaman væri að sjá á þingi. Hins vegar held ég að framboðið endi ekki með meira en svona 5-6% fylgi, tekið jafnt frá stjórnaraflokkunum og stjórnarandstöðu. Til þess að þessi atkvæði falli ekki dauð niður þar framboðið að ná inn kjördæmakjörnum þingmanni í Reykjavík eða kraganum. Það er alls ekki gefið, en Ómar gæti náð í því kjördæmi þar sem hann fer í framboð.

Hvað með meðalþyngd barna á konu?

Er það bara ég eða er þetta ekki óvenju stór nýfædd stúlka þarna á myndinni. Ætli við förum ekki bara uppfyrir tyrkina ef "fallþungi" barnanna er talinn? Tounge
mbl.is Barnsfæðingum fjölgaði á síðasta ári og frjósemi kvenna vex
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gerðu eins og ég segi, ekki geri

Nú hafa bretar ákveðið að eyða 20 milljörðum punda, eða 260 milljörðum íslenskra króna í að endurnýja kjarnorkuflota sinn. Þetta gera þeir þrátt fyrir að þeir viðurkenni að landinu stafi engin ógn sem kjarnorkuvopnin gætu "komið að notum". Hver er þessi hugsanlega "framtíðarógn"? Ef hryðjuverkamenn komast yfir kjarnorkuvopn, (sem er auðvitað þeim mun auðveldara eftir því sem fleiri vopn eru til), hvernig virka bresk kjarnorkuvopn sem "fæling" á að snarbrjálaðir hryðjuverkamenn noti slík vopn. Á að hóta að sprengja upp heimaborg hryðjuverkamannsins? Þeir sem frömdu óhæfuverkin í London 2005 voru flestir fæddir og uppaldir í Leeds, á að hóta að sprengja upp Leeds? Það segir sig sjálft að kjarnorkuvopn eru fáránleg "fæling" gegn hryðjuverkamönnum. Og hvaða ríkjum gætu slík vopn hugsanlega virkað sem "fæling" gegn? Það land sem í dag er líklegast til að nota kjarnorkuvopn eru Bandaríkin. Er bresku vopnin hugsuð gegn BNA?

Það versta við þessa ákvörðun er að hún gefur vafasömum ríkisstjórnum grænt ljós á þróun slíkra vopna. Það er gefið mál að Íran stafar ógn frá Bandaríkjunum. Er þá ekki skiljanlegt að íransstjórn líti til kjarnorkuvopna sem fælingarvopna? Nú eru flestir sammála að kjarnorkuvopn í höndum írana gætu orðið stórhættuleg í þeirri púðurtunnu sem miðausturlönd eru. En hljómar það ekki falskt af bretum að krefjast þess að íranir (sem vissulega stafar ógn af erlendum her) hætti þróun kjarnorkuvopna, meðan þeir sjálfir eyða hundruðum milljarða í kjarnorkuvopn fyrir hugsanlega ógn einhverntíman í framtíðinni. 


mbl.is Breska kjarnorkuvopnabúrið verður endurnýjað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsta bloggfærsla

Jæja, þá er maður loksins búinn að láta verða af því að stofna bloggsíðu heima. Er búið að vera á "to do" listanum um nokkurn tíma. Gott að nota tækifærið núna fyrir kosningar, enda stefnir loksins í það að við losnum við ríkisstjórnarómyndina og fáum vinstristjórn. Svo hef ég auðvitað voða gaman af því að rífast um stjórnmál, þannig að nú er rétta tækifærið að stofna bloggsíðu!

Ég er nú búinn að búa erlendis í yfir 15 ár, síðan ég fór í nám, þannig að ég get sagt að ég sjái ástandið heima (takið eftir ég nota enn orðið "heima" um Ísland) að hluta með gests augum. Ég mun auðvitað blogga um stjórnmálin á Íslandi, í Bretlandi þar sem ég nú bý og annarstaðar eftir þörfum, sérstaklega í Bandaríkjunum þar sem ég þekki vel til þar síðan ég bjó í Washington. Svo er konan líka bandarísk þannig að það eru hæg heimatökin.

Svo er það bloggnafnið. Þjálfi skal það vera. Þjálfi er bróðir Röskvu, sem voru eina mannfólkið sem komst lifandi til Valhallar í goðasögunum. Það er auðvitað löngu kominn tími á að mannfólkið taki við af goðunum í Valhöll. Þegar ég var í háskólanum á Íslandi þá stofnuðum við nokkrir vinstrimennirnir Röskvu, samtök félagshyggjufólks í HÍ: Margir framámenn vinstrimanna í stjórnmálunum í dag koma úr Röskvu. Félagið var stofnað til að gera veg vinstrimanna sem mestan meðal stúdenta, í Röskvu sameinuðust vinstrimenn í háskólanum. En stundum þarf Röskva á hjálp frá stóra bróður að halda. Stundum villist hún af réttri leið. Þá er alltaf gott að eiga að stóran bróður sem vill henni allt það besta. Þá er gott að eiga stóran bróður sem segir henni hlutina eins og þeir eru. Það mun Þjálfi reyna að gera.


Höfundur

Guðmundur Auðunsson
Guðmundur Auðunsson

Vill leggja sitt af mörkum til að byggja upp nýtt samfélag jöfnuðar og réttlætis.

mummi[á]btinternet.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband