Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Halló, á hvaða forsendum?

Eiga stjórn og stjórnarandstaða að "snúa bökum saman" til að vernda seðlabankastjórn? Eiga stjórn og stjórnarandstaða að "snúa bökum saman" til að vernda fjármálaeftirlitið? Eiga stjórn og stjórnarandstaða að "snúa bökum saman" til að láta brennuvargana halda áfram að stjórna bönkunum? Eiga stjórn og stjórnarandstaða að "snúa bökum saman" til að selja eigur þjóðarinnar með leynd í skjóli "bankaleyndar"? Eiga stjórn og stjórnarandstaða að "snúa bökum saman" til að setja heimilin og fyrirtækin í landinu á hausinn með hávaxtastefnu? Því miður Ingibjörg Sólrún, þið fenguð ykkar tíma, nú er komið nóg. Ekki einn einasti einstaklingur hefur verið dreginn til ábyrgðar fyrir að skuldsetja börnin mín. Enda er lögreglan upptekin við að handtaka mótmælendur sem voga sér að segja hingað og ekki lengra.
mbl.is Stjórn og stjórnarandstaða snúi bökum saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flauelsbyltingin í Tékkóslóvakíu

Fyrir réttum 19 árum var byltingarástand í Tékkóslóvakíu. Atburðirnir hófust fyrir alvöru 16. Nóvember 1989 og enduðu með algjöru hruni stjórnkerfisins í lok desember það ár þegar skáldið og andófsmaðurinn Václav Havel var kjörinn forseti landsins. Þó að efnahagskerfi landsins væri í skárra ástandi en flestra nágrannalandanna þá var ljóst að ríkisstjórnin var pólitískt gjaldþrota. Fólkið var búið að fá nóg. Það reis upp gegn ríkisstjórninni og þrátt fyrir að stjórnvöld reyndu að lægja öldurnar með málamiðlunum og óljósum loforðum um umbætur, samþykkti fólkið það ekki. Nú var komið nóg. Skipta þurfti um allt settið. Flauelsbyltingin svokallaða var hafin. Byltingin tók samtals um einn og hálfan mánuð og var nær algjörlega friðsamlega. Ríkisstjórnin hékk um tíma en gafst að lokum upp. Fólkið hafði sigur.

Nú er flauel ekki mjög áberandi á Íslandi. Hins vegar er flís mjög almennt notað meðal almennings. Orðið flís hefur líka þá skemmtilegu skírskotun að það þýðir bæði óunnin ull af sauðfé og hið nútímalega hlýja efni sem nær allir íslendingar klæðast í dag. Er í raun hinn nýi lopi, skírskotar bæði til róta okkar sem sauðfjárbænda og til nútímans sem hátækni iðnaðarframleiðsla. Svo er er hið auðvitað hið gyllta flís úr grísku goðafræðinni, sem vísar til flótta undan erfiðleikum. Flís stefnir því til framtíðar, en er með sögulegum skírskotunum. Nú er ég staddur í London, Bretlandi en mun koma heim fljótlega. Ég mætti á fyrsta mótmælafundinn gegn ríkisstjórninni og seðlabankastjóra á Austurvelli fyrir rúmum mánuði í flísjakkanum mínum. Þegar ég kem heim aftur mun ég mæta á Austurvöll á ný í flísjakkanum mínum. Og vænti þess að þúsundir annarra muni gera slíkt hið sama. Er ekki komið nóg?


mbl.is Ónýtur banki bjargar ónýtri krónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknarflokkurinn 1916-2008 RIP

Framsóknarflokkurinn hefur nú gefist upp og er ekki nema gott um það að segja. Þessi flokkur var orðin undir það síðasta að atvinnumiðlun fyrir metnaðarfull meðalmenni, þó vissulega eigi flokkurinn glæsta fortíð sem nú verður einungis efni sögubóka. Hann átti fyrir löngu síðan að vera kominn á byggðasafn. Flokkurinn stóð fyrir, ásamt Sjálfstæðisflokknum, fyrir einkavinavæðingu bankakerfisins sem gerði einstaklinga tengda flokknum að milljarðamæringum og endaði með því að skuldsetja landsmenn til áratuga með bankahruninu, sem flokkurinn ber næstum því jafn mikla ábyrgð á og Sjálfstæðisflokkurinn. fyrir um 15 árum ákvað flokkurinn, undir forystu þáverandi formanns, Halldórs Ásgrímssonar, að leggja af alla hugmyndafræði og breyta flokknum í atvinnumiðlun sem einbeitti sér að því að sitja við kjötkatlana. Nú eru katlarnir tómir og því að litlu að sækjast eftir og því augljóslega sjálfhætt þessu flokksbasli. Þetta virðist Guðni hafa skilið og sagt bless. Nú situr einkavinavæðingarfrúin sem "formaður" líksins, en allir vita að sá uppvakningur lifir ekki lengi. Þó vissulega verði sjónarsviptir af hvarfi Framsóknarflokksins úr pólitík, þá munu ekki margir syrgja hann, enda augljóslega vitagagnslaust fyrirbæri í dag. Velkominn á byggðasafnið.
mbl.is Guðni segir af sér þingmennsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt upp á borðið

Það er gersamlega óþolandi að verið sé að halda leyndum upplýsingum fyrir þeim sem koma til með að borga fyrir sukkið, almenningi. Það er lágmarkskrafa að allt sé sett upp á borð og þessu pukri hætt þegar í stað.
mbl.is Steingrímur J. krefst upplýsinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn er kaupverð ekki gefið upp

Enn er verið að selja eigur okkar með leynd, við höfum kröfu á því að fá að vita kaupverðið. Hvað er verið að fela? Kaupverð á skráðum fyrirtækjum verður að gefa upp, hvers vegna er verið að fela fyrir okkur verðið sem fæst fyrir eigur almennings? Er verið að einkavinavæða þetta? Fá einhverjir kommision? Þetta lyktar allt, krafan hlýtur að vera að allt komi upp á yfirborðið, hættum þessu pukri. Angry
mbl.is Sænskar eignir Kaupþings seldar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

8 ára í járnum?!

Þessi 8 ára drengur er augljóslega stórskemmdur og þarf vissulega á geðrannsókn að halda. En leiða hann í járnum inn í réttarsalinn?! Eru menn gengnir af göflunum. Ég hef staðið í þeirri meiningu að járn á föngum væru til komin til þess að þeir yrðu engum að skaða eða gætu ekki flúið. En halda menn virkilega að 8 ára barn þurfi á járnum að halda? Augljóslega er hér um að ræða sirkussýningu, fyrir blóðþyrstan almenning. Það er eitthvað verulega að í samfélagi sem dregur 8 ára barn inn í réttarsal í járnum, sama hvað alvarlegur glæpur hans er. Er ekki annars Arizona þaðan sem John McCain er frá?
mbl.is Átta ára gamall sakborningur mætti fyrir dómara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af öllum ástæðum afsagnar...

...þá er þetta eini þingmaðurinn sem hefur sagt af sér. Í alvöru, allir þeir þingmenn og ráðherrar sem borið hafa ábyrgð á hruninu sitja sem fastast kyrjandi "ekki benda á mig" sitja sem fastast án þess að skammast sín, þar á meðal viðskiptaráðherrann sem bar ábyrgðina á einkavinavæðingu bankanna sem við erum nú að borga fyrir. Seðlabankastjóri situr enn, en greyið hann Bjarni er látinn fjúka!

Nú hef ég svo sem litlar skoðanir á Bjarna greyinu, en hann má eiga það að hafa verið eini þingmaður exbé sem ekki sat á þingi undir BD hryllingsstjórninni. En það sýnir hversu sjúkt íslenskt stjórnkerfi er þegar hann er eini hausinn sem hefur verið látinn fjúka. Í alvöru, fatta menn virkilega ekki að allt á eftir að sjóða uppúr? 


mbl.is Guðni: Bjarni axlar ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ungir sýna ábyrgð

Breyttar forsendur í efnahagsmálum kalla ávallt á endurskoðun stefnumála. Slík endurskoðun sýnir hugsun og ábyrgð. Vinstrimenn hafa ávallt verið á móti ESB vegna efnahagsmála og lýðræðishalla hjá samtökunum. Slík andstaða er auðvitað gerólík þjóðernisrembingi sem einkennir andstöðu hægrimanna. Því er sjálfsagt að líta á ESB á ný. Kúdos til ungliðanna.

Persónulega þarf mikið til að sannfæra mig um ágæti þess að ganga í ESB. En nýir tímar kalla á nýjar áherslur og er ég því tilbúinn að líta á málið. Persónulega vil ég sjá sterka félagslega Evrópu, byggða á samvinnu og velferð. Mikið hefur vantað á að ESB starfi á þessum grunni. En hrun spilavítiskapítalismans hefur breytt heiminum og breytir e.t.v. ESB líka þó of snemmt sé um það að segja á þessum tímapunkti. Þessu skulum við fylgjast með. Gordon Brown er allavega hættur að væla um "deregulation, deregulation" eins og hann hefur gert síðastliðin 10 ár. Ef ESB sér að sér í efnahagsmálum, eins og samtökin hljóta að gera, og embættismannavaldið verður takmarkað, þá má alveg líta á samtökin aftur. En hlutir þurfa að breytast ef samtökin eiga að virka í nýjum heimi. Félagslega Evrópu, já takk, en áframhaldandi Evrópu spilavítiskapítalista viljum við ekkert með hafa. Lítum því raunhæft á málin, forðumst sleggjudóma, en forðumst líka á að líta á ESB sem einhverskonar allsherjar bjargvætt. Fyrst þurfum við að hreinsa til heima hjá okkur.


mbl.is Nýr tónn í Evrópuumræðu VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamli maðurinn kemst beint að kjarna málsins.

Það sem hann telur mikilvægasta verkefni nýja forsetans er að berjast fyrir friði í heiminum og gegn fátækt og sjúkdómum. Þetta þrennt hefur verið utanveltu í bandarískum stjórnmálum og vonandi hlustar Obama á Mandela og gerist sósíalisti eins og kempan, þó líklega megi hann ekki kalla þar sósíalisma. Bjarga þarf bandaríska heilbrigðiskerfinu og stunda stórfellda tilfærslu frá hinum ofsaríku bónusfurstum til fátæks bandarísks almennings

Sjálfur er ég hóflega bjartsýnn með Obama. Hann er auðvitað enginn róttæklingur á alþjóðamælikvarða, en hefur alla burði til að verða besti forseti Bandaríkjanna síðan Franklin Delano Roosevelt var og hét. Nú er bara að krossleggja fingur og vona að hann klúðri þessu ekki með einhverskonar clintonsku miðjumoði. Við á heimili mínu vonum auðvitað hið besta, enda eru þrír bandarískir ríkisborgarar heima hjá mér.


mbl.is Mandela fagnar kjöri Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Guðmundur Auðunsson
Guðmundur Auðunsson

Vill leggja sitt af mörkum til að byggja upp nýtt samfélag jöfnuðar og réttlætis.

mummi[á]btinternet.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband