6.10.2008 | 17:20
Hausar skulu fjúka...
... og þeir sem eru ábyrgir skulu sæta ábyrgð. Það er almenningur sem kemur til bjargar bankakerfinu, almenningur á þá kröfu að þeir sem stefndu fjármálakerfinu í þrot sæti ábyrgð. Ríkisstjórnin ber pólitíska ábyrgð, seðlabankinn hefur brugðist skyldu sinni. Nýja sópa þarf í brúnna. Það er almenningur sem ber skaðann, almenningur á þá sjálfsögðu kröfu að þeir sem spiluðu fjárhættuspil á árum áður skili til baka bónusunum sem byggðu á fjárhættuspili. Skattleggja skal bónusa fyrri ára, það er fjarstæða að menn hafi fengið árlega margföld árslaun launafólks í bónusa. Svo skal setja nú þegar á 70% skatt á ofsalaun, bónusfurstarnir eiga að leggja sitt fram til samfélagsins. Spilavítiskapítalisminn í heiminum er hruninn. Endurskoða skal allt fjármálakerfi heimsins. Setjum Tobin skatt á allar fjármálafærslur í heiminum og notum peningana sem safnast til að útrýma örbyggð í heiminum og mennta næstu kynslóð fátækra landa. Nú er nóg komið. Ya basta!
Víðtækar heimildir til inngripa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Athugasemdir
Ég er ekki viss um að ofurskattheimta gangi upp, en ábyrgð skulu þeir sæta sem hana bera.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 7.10.2008 kl. 00:30
Tobin skatturinn er allavega "no brainer". Við þurfum sterkt fjármálakerfi en fyrir íslenskar aðstæður. Eftir reiðina í gær þá er maður bara orðinn dofinn. Hvað verður um lífeyri landsmanna? Nú er ríkisstjórnin loksins kominn í réttan gír og það gerir mig vonbetri.
Guðmundur Auðunsson, 7.10.2008 kl. 12:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.