20.2.2008 | 11:50
Blekkingar um stimpilgjöld
Svei mér þá, það eina sem kemur af viti í þessari grein kemur frá Árna fjármálaráðherra! Það virðist vera útbreiddur misskilningur (eða vísvitandi blekkingar) meðal manna að stimpilgjöld séu skattur á húsakaupendur. Þetta er þvæla, stimpilgjöld eru fyrst og fremst skattur á húsnæðisseljendur. Þetta er einfaldlega staðreynd svo lengi sem menn telja að verð á markaði ráðist (allavega að hluta) af framboði og eftirspurn. Ef ég er með 20 milljónir sem ég þarf að nota í húsnæðiskaup þá er ég tilbúinn að borga 20 milljónir, svo einfalt er það. Ef stimpilgjöldin af kaupunum eru 500 þúsund og þau eru lögð niður, þá er ég áfram tilbúinn að borga 20 milljónir, þannig að það er húsnæðisseljandinn sem græðir á niðurfellingu skattsins. Skiptir litlu máli hvort mikil þensla sé í hagkerfinu (eina undantekningin er þegar alvarlegur markaðsbrestur er á húsnæðismarkaðinum þannig að húsnæðiseigendur eru ekki tilbúnir að selja en það er fjarstæða að slíkt ástand sé við líði á Íslandi). Það sem verra er, ef ég bý í góðu húsnæði en er með 20 milljónir til skammtímafjárfestinga þá eru stimpilgjöldin eitt af því sem hindar mig í því að fjárfesta í húsnæði. Ef þau eru felld niður eykst húsnæðisbrask stórlega, sem leiðir auðvitað til hækkaðs húsnæðisverðs. Þannig að þeir einu sem græða á niðurfellingu stimpilgjalda eru húsnæðisbraskarar og eigendur húsnæðis, sem þegar eru búnir að græða stórlega á hækkunum á húsnæði (þetta eru auðvitað einföldun). Þeir sem tapa eru nýir húsnæðiskaupendur sem þurfa að borga hærra verð vegna braskaranna. Er það markmið ríkisstjórnarinnar, að færa peninga frá unga fólkinu sem er að berjast við að kaupa sína fyrstu íbúð til stóreignamannanna?
Það er sorglegt að Samfylkingin hafi á að skipa viðskiptaráðherra sem enga þekkingu virðist hafa á verðmyndun og ekki þekkja til framboðs og eftirspurnar. Er virkilega ekki hægt að finna einhvern sem skilur ABC í hagfræði í flokknum? Sorglegt að dýralæknirinn Árni virðist allavega hafa smá skilning á málinu.
Hættulegt að hætta að stimpla? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Athugasemdir
Landinu okkar virðist stjórnað með hagsmuni einstakra manna í huga en ekki hag heildarinnar þvi miður. Mér finnst að ráðherrar ættu að leita ráða sérfræðinga, og ekki bara eins eða tveggja, heldur fá ráð frá fleirum og bera saman, til að fá nokkurnveginn rétta mynd af ástandinu eins og það er raunverulega. Ætli landið þurfi að fara á hvolf til að hugsunin breytist og menn átti sig á því að það gengur ekki lengur að hugsa svona smátt.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.2.2008 kl. 11:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.