Leita í fréttum mbl.is

Sérkennilegur fréttaflutningur

Fréttaflutningur Morgunblađsins af dönsku kosningabaráttunni virđist vćgast sagt furđulegur, og virđist frekar einkennast af óskhyggju frekar en raunveruleikanum. Kratarnir virđast eitthvađ vera ađ síga, en ţađ er meira en bćtt upp međ stórsókn systurflokks VG, Sosialistik folkeparti, sem stefnir í ađ meira en tvöfalda fylgi sitt. Ţriđji vinstriflokkurinn, Enhedslisten er núna líka inni (yfir 2%) samkvćmt nýjustu könnunum. Politiken segir líka samkvćmt síđustu könnunum ţá séu ţađ stjórnarandstöđuflokkarnir sem séu jafn nálćgt ţví ađ ná meirihluta einir og ríkisstjórnarflokkarnir. Enn virđist allt benda til ađ flokkur Nasser Khaders muni vera í oddastöđu.

Kosningarnar eru allavega mjög spennandi og allt getur gerst. Félagar okkar í Danmörku ţurfa ţví augljóslega ađ bretta upp ermarnar til ađ tryggja ađ ríkisstjórnin falli.


mbl.is Allt bendir til ţess ađ danska stjórnin haldi velli
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Hallsson

Já Guđmundur, fréttin á mbl.is er dálítiđ mikiđ skrifuđ frá einni hliđ og ţađ ekki í fyrsta skipti. Sennilega einhver óskhyggju-hćgrimađurinn sem er ekki sérlega mikiđ inni í dönskum stjórnmálum og notar Börsen sem sína helstu heimild :) Ţetta verđur spennandi á morgun og stórsigur SF er í sjónmáli og Einingarlistinn er kominn á ţing samkvćmt flestum könnunum. En eina könnunin sem mark er á takandi fer jú fram á morgun. Bestu kveđjur til London,

Hlynur Hallsson, 12.11.2007 kl. 10:26

2 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Já, ég tók ekki bara eftir ţessu á mbl.is heldur líka í sjónvarpinu í gćr.

María Kristjánsdóttir, 12.11.2007 kl. 16:55

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Guðmundur Auðunsson
Guðmundur Auðunsson

Vill leggja sitt af mörkum til að byggja upp nýtt samfélag jöfnuðar og réttlætis.

mummi[á]btinternet.com

Nóv. 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband