Leita í fréttum mbl.is

Sérkennilegur fréttaflutningur

Fréttaflutningur Morgunblaðsins af dönsku kosningabaráttunni virðist vægast sagt furðulegur, og virðist frekar einkennast af óskhyggju frekar en raunveruleikanum. Kratarnir virðast eitthvað vera að síga, en það er meira en bætt upp með stórsókn systurflokks VG, Sosialistik folkeparti, sem stefnir í að meira en tvöfalda fylgi sitt. Þriðji vinstriflokkurinn, Enhedslisten er núna líka inni (yfir 2%) samkvæmt nýjustu könnunum. Politiken segir líka samkvæmt síðustu könnunum þá séu það stjórnarandstöðuflokkarnir sem séu jafn nálægt því að ná meirihluta einir og ríkisstjórnarflokkarnir. Enn virðist allt benda til að flokkur Nasser Khaders muni vera í oddastöðu.

Kosningarnar eru allavega mjög spennandi og allt getur gerst. Félagar okkar í Danmörku þurfa því augljóslega að bretta upp ermarnar til að tryggja að ríkisstjórnin falli.


mbl.is Allt bendir til þess að danska stjórnin haldi velli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Hallsson

Já Guðmundur, fréttin á mbl.is er dálítið mikið skrifuð frá einni hlið og það ekki í fyrsta skipti. Sennilega einhver óskhyggju-hægrimaðurinn sem er ekki sérlega mikið inni í dönskum stjórnmálum og notar Börsen sem sína helstu heimild :) Þetta verður spennandi á morgun og stórsigur SF er í sjónmáli og Einingarlistinn er kominn á þing samkvæmt flestum könnunum. En eina könnunin sem mark er á takandi fer jú fram á morgun. Bestu kveðjur til London,

Hlynur Hallsson, 12.11.2007 kl. 10:26

2 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Já, ég tók ekki bara eftir þessu á mbl.is heldur líka í sjónvarpinu í gær.

María Kristjánsdóttir, 12.11.2007 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðmundur Auðunsson
Guðmundur Auðunsson

Vill leggja sitt af mörkum til að byggja upp nýtt samfélag jöfnuðar og réttlætis.

mummi[á]btinternet.com

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband