27.1.2009 | 13:30
Nú þarf að bretta upp ermarnar...
... þessi ríkisstjórn getur ekki verið "starfsstjórn". Of mikið er í húfi. Það þarf að hreinsa til í bönkunum, það þarf að rekja horfna peninga og frysta eigur fjárglæframannanna. Þó þessi ríkisstjórn hefði ekki meirihluta á þingi tel ég að hún geti náð miklu fram, Framsóknarflokkurinn mun ekki standa í vegi fyrir róttækum aðgerðum. Síðan verða kosningar í vor og þá rækilega tekið til í þingmannahópnum. Þá ætti góður meirihluti á þingi að geta skapast fyrir róttækum breytingum á íslensku samfélagi þannig að við reisum samfélag jöfnuðar og réttlætis úr rústum spilavítiskapítalismans. Byltingin er rétt að byrja!
Falið að mynda stjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Athugasemdir
Já einmitt, þeir hafa sett fram óskalista sem þeir vonandi fylgja, þar með brottrekstur bankastjóra og stjórnar seðlabanka og frystingu eigna. Aftur á móti held ég að þeir ættu að láta ESB alveg eiga sig í bili.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.1.2009 kl. 15:14
Íhaldið er byrjað með áróðurinn, þeir hafa ekkert annað að gera næstu mánuði en hamast með söguburðinn, sannan, ýktan og loginn. Svo raka þeir að sér atkvæðum í næstu kosningum og stjórna svo "ever after".
Fólk er fífl með gullfiskaminni. Vonandi er ég fífl og hef rangt fyrir mér með þetta.
Annars bestu kveðjur til þín og þinna.
Áfram Röskva
Kristjana Bjarnadóttir, 27.1.2009 kl. 20:36
Þetta hefði e.t.v. átt við Ísland í gær Kristjana, en ég er viss um að þetta á ekki við Ísland í dag. D fær 22% fylgi í næstu kosningum.
Guðmundur Auðunsson, 28.1.2009 kl. 15:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.