10.5.2007 | 22:12
Lokaspretturinn
Núna er bara lokaspretturinn eftir. Vinstriflokkarnir virðast vera á góðri siglingu, Samfylkingin hefur sérstaklega sýnt frábæran endasprett og óska ég þeim til hamingju með það. Ég sem vinstrimaður lít fyrst á hvort ríkisstjórnin sé fallin, síðan samanlagt fylgi vinstriflokkanna og loks á fylgi minna manna í VG. Vissulega vildi ég gjarnan sjá minn flokk sem hæstan, sérstaklega finnst mér það miður að Guðfríður Lilja í kraganum virðist úti. Hvet alla vinstrimenn til að tryggja kjör hennar. VG er í þeirri aðstöðu að mögulega tvöfalda fylgi sitt, sem væri stórkostlegt. Allt yfir 15% væri auðvitað sigur en fylgi undir 14% vonbrigði vegna góðs gengis í skoðanakönnunum. Ég hvet alla vinstrimenn að tryggja allavega að VG verði stærri en Framsókn, annað væri stórslys. En vissulega skiptir mestu máli að fella ríkisstjórnina og þessi könnun Stöðvar 2 lofar því góðu. Nú þurfa allir að tryggja að allir vinir og vandamenn kjósi og felli ríkisstjórnina!
Samfylking og Framsóknarflokkur bæta við sig samkvæmt könnun Stöðvar 2 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Myndaalbúm
Af mbl.is
Viðskipti
- Indó lækkar vexti
- Hlutverk Kviku að sýna frumkvæði á bankamarkaði
- Þjóðverjar taka við rekstri Fríhafnarinnar
- Trump lyftir Bitcoin-verði í hæstu hæðir
- Ekki svigrúm til frekari launahækkana
- Sækja fjármagn og skala upp
- Óttast að fólk fari aftur að eyða peningum
- Innherji: Frekari uppsagnir en nú tveir forstjórar
- Eigið fé er dýrasta fjármögnunin
- Skoða skráningu á Norðurlöndum
Athugasemdir
Ég er innilega sammála þér í því að mestu máli skiptir að ríkisstjórnin falli. Og ég fagna hverju atkvæði greiddu stjórnarandstöðunni. Hins vegar vil ég að Frjálslyndi flokkurinn fái góða kosningu. Því ég er sannfærð um að okkar stefnumál eigi sér hljómgrunn meðal hinna flokkanna og alþýðunnar í þessu landi, og þá á ég fyrst og fremst við sjávarútvegsmálin, þar sem ég treysti okkar fólki best og svo í málefnum innflytjenda. Þar sem taka þarf á þeim málum mjög alvarlega. Sérstaklega huga að því að í dag er landið okkar lokað fyrir fólki frá öllum löndum utan Evrópu. Sem er alveg hrikaleg staðreynd. Það þarf að laga. Og líka gæta að þvi að fólk sem hingað kemur til að vinna njóti sömu kjara og við.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.5.2007 kl. 23:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.