10.4.2007 | 11:41
Hjálp!
Uwe Reinhardt er örugglega ánægður hversu mikla athygli háðsádeilan hans hefur fengið. En maður sér á viðbrögðum sumra við greininni að þeir eru skilja ekki kaldhæðni. Ísland var valið til þess að sýna fram á fáránleika mögulegra loftárása Bandaríkjahers á Íran, einmitt vegna þess hversu fáránlegt öllum þætti að ráðast á Ísland. Svo einfalt er það. Samt skilst manni að einhverjir krefist þess að Reinhardt biðji íslendinga afsökunar. Fyrir hvað? Og svo sér maður að prófessorinn hefur fengið morðhótanir frá einhverjum Magnúsi Schram, sem ekki einungis afhjúpar skilningsleysi sitt heldur einnig rasisma sinn með þessu "frábæra" innleggi:
"You are a bloody motherfker," Magnus Schram wrote to Reinhardt last night. "It would please [me] if you would die in flames ... your ancestor was probably a poor Irishman who traveled across the sea in search for a better life."
Í alvöru, menn ættu að passa sig þegar þeir senda tölvupóst áður en þeir verða sjálfum sér og íslendingum almennt til skammar.
Mikil viðbrögð við grein háskólaprófessors um sprengjuárás á Ísland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:04 | Facebook
Færsluflokkar
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Athugasemdir
Mikið rétt hjá þér. Magnús Schram ætti að hugsa sinn gang og biðjast afsökunar á þessu skeyti sínu. Miklar líkur eru nefnilega á að hann sé sjálfur afkomandi írskra manna og hefur þá skotið á sig sjálfan.
En ósköp á Magnús greyið bágt, að skilja ekki háðið í greininni og hverjum það er ætlað.
Vignir Hjálmarsson (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 14:03
Góður punktur Vignir, einhvernvegin finnst mér líklegra að íslendingurinn Magnús sé af írskum ættum heldur en þjóðverjinn Uwe Reinhardt!
Guðmundur Auðunsson, 10.4.2007 kl. 16:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.