Leita í fréttum mbl.is

Þetta er ekki stríð milli bresks almennings og íslensks almennings!

Hrun íslensku bankanna fellur nú með fullum þunga á almenning bæði í Bretlandi og á Íslandi. Bresk sveitarfélög eru með yfir milljarð punda (tugi milljarða íslenskra króna) á reikningum Icesave. Góðgerðarsamtök eru með yfir 100 milljónir punda á þessum reikningum og önnur almannaþjónustufyrirtæki með annað eins. Því virðist ljóst að almenningur í Bretlandi (þ.á.m. ég) kemur til með að blæða. Um hryllinginn sem blasir við íslenskum almenningi er þarf ekki að fjölyrða. Þar, eins og í Bretlandi er það almenningur sem blæðir. Það er að mínu áliti stórhættulegt að stilla þessu upp sem baráttu milli íslensks almennings og bresks almennings. Báðir hópar eru fórnarlömb. Það sem nú þarf að gera er að finna Icesave peningana.

Innistæður í Icesave/Landsbanka eru mun hærri en fjárlög íslenska ríkisins. Þessar svakalegu upphæðir laðaði bankinn til sín með því að bjóða lang hæstu vexti sem í boði voru á Bretlandseyjum. Nú er ég ekki bankamaður, en kann hins vegar töluvert í hagfræði. Þar sem hlutverk fjármálastofnanna er að miðla sparnaði í fjárfestingar, þá hlýtur Landsbankinn að hafa verið með rosa flott fjárfestingamódel, annars væru þeir varla tilbúnir að borga meira fyrir sparnaðinn en nokkur annar banki á Bretlandseyjum. Nú eigum við því kröfu á að sjá þessi flottu fjárfestingarmódel Landsbankans. Þar hljóta peningarnir að vera. Ekki voru þeir í húsnæðislánum, sem erfitt er að losa út í fljótheitum. Peningarnir hljóta því að vera í rosa flottum fjárfestingum og tryggum ábatasömum lánum. Því hlýtur maður að reikna með, var ekki verið að borga bankastjórunum rosa flott laun og bónusa þar sem þeir eru svo klárir? Finnum þessa peninga og borgum breskum almenningi með þeim. Þetta eru þeirra peningar.

Við skulum hætta að stilla þessu upp sem baráttu milli íslensks og bresks almennings. Fólk þessara landa á að snúa bökum saman og velta hverri þúfu og leita í öllum skápum, á öllum flugvöllum og á öllum karabískum eyjum, einhverstaðar hljóta Icesave peningarnir að vera. Þessa peninga á að nota til að borga innlánin, og ef þeir eru horfnir þá þarf að finna skýringu á því hvers vegna þessir peningar hurfu. Nú þurfa íslenskur almenningur og breskur almenningur að hætta að kenna hvor öðrum um en snúa sér hins vegar saman að því að finna Icesave peningana.


mbl.is Sendinefnd Breta væntanleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hár rétt hjá þér,það er ekki íslenskur almenningur sem bretar eru reiðir úti núna heldur íslensk stjórnvöld og stjórnendur Landsbankans fyrverandi.Hvar er þessi peningur og hver var það sem flutti þessar fjárhæðir burt frá Bretlandi og hvar enduðu þær ? Og hvers vegna hafa íslensk stjórnvöld ekki kyrrset eigur þessara manna hér á Íslandi ?  

Jon Mag (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 13:55

2 identicon

Virkilega gaman ad lesa pistlana tina og ekki haegt ad segja annad sen vid seum sammala morgu. Vid erum anaegd ad vera fjarri ollu ruglinu heima og njotum okkar a flakki um heiminn.

Bestu kvedjur,

Osk og Hemmi

Osk (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 00:47

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þér hér í þessari grein. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.10.2008 kl. 11:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðmundur Auðunsson
Guðmundur Auðunsson

Vill leggja sitt af mörkum til að byggja upp nýtt samfélag jöfnuðar og réttlætis.

mummi[á]btinternet.com

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband