Leita í fréttum mbl.is

Dapurlegur dagur í borginni

Reykvíkingar hafa nú upplifað einn dapurlegasta dag í sögu stjórnmála í borginni. Í fyrsta sinn í Íslandssögunni er meirihluti klofinn án nokkurs málefnaágreinings. Ég er þess fullviss að þessi meirihlutaómynd mun ekki sitja lengi. Það góða er að V og S eiga að geta unnið meirihluta auðveldlega í næstu kosningum. En það breytir því ekki að í millitíðinni munu borgarbúar búa við leikhús fáránleikans í anda Dario Fo.

Það gleður mig hins vegar að sjá allt þetta unga fólk á bekkjunum, sem sannar það að ástríða fyrir pólitík er ekki dauð úr öllum æðum. Reykvíkingum er misboðið og við getum verið stolt af unga fólkinu okkar. Allt tal um áhugaleysi ungs fólks fyrir stjórnmálum afsannast hér með. Unga fólkið sýnir hér pólitíska ástríðu sem oft hefur vantað upp á síðkastið. Bravó krakkar, látið ekki einhverja nöldurseggi þagga niður í ykkur, ungt fólk á að vera ástríðufullt,  því þeirra er framtíðin. Og ég get ekki verið annað en bjartsýnn á framtíðina. Cool


mbl.is Ólafur kjörinn borgarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásta Hrönn

Sammála síðasta ræðumanni! HEYR HEYR!

Ásta Hrönn , 24.1.2008 kl. 14:09

2 Smámynd: Kristjana Bjarnadóttir

Lýsi einnig ánægju minni með unga fólkið. Tel jákvætt að það láti sig málið skipta, oft hefur verið talað um áhugaleysi þess. Ungt fólk á að mótmæla ef því finnst réttlætistilfinningu þess misboðið.

Kristjana Bjarnadóttir, 24.1.2008 kl. 16:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðmundur Auðunsson
Guðmundur Auðunsson

Vill leggja sitt af mörkum til að byggja upp nýtt samfélag jöfnuðar og réttlætis.

mummi[á]btinternet.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband