Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Flokkur til sölu

Fyrrverandi stórveldi meðal íslenskra stjórnmálaflokka, Framsóknarflokkurinn er til sölu. Flokkurinn er enn með nokkra kjörna fulltrúa, en þeir verða horfnir eftir næstu kosningar. Það eru því að verða síðustu forvöð fyrir flokkinn að komast að kjötkötlunum og eru flokksmenn því tilbúnir að styðja hvern þann sem vill til meirihluta. Verðið eru bitlingar, samstarfsflokkurinn getur valið öll stefnumálin.

Vinsamlegast sendið tilboð til Óskars Bergssonar, seinasta borgarfulltrúa Framsóknarflokksins í sögunni.


mbl.is Nýr meirihluti að fæðast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrípaleikur í borginni

Farsinn í Reykjavík heldur áfram. Sjálfseyðingarhvöt meirihlutaflokkanna heldur áfram, Sjálfstæðisflokkurinn stefnir hraðbyri niður fyrir 30% fylgi í næstu kosningum. Mun líklega keppa um annað sætið við VG. Enginn treystir Ólafi lengur eðlilega og seinasti borgarfulltrúi Framsóknarflokksins er desperat við að komast að kjötkötlunum. Á meðan er stjórn borgarinnar í uppnámi. Við höfum greinilega versta meirihluta borgarstjórnar í sögunni og skiptir þá engu máli hvort fulltrúi hins lifandi pólitíska líks verður tekinn inn eða ekki. Grátbroslegt. Það góða er að S og V munu nú örugglega ná meirihluta í borginni 2010 og taka við stjórninni næstu áratugi.
mbl.is Óvissa um meirihlutann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Suður Ossetía og Kosovo

Sko, það er ekki hægt að æsa sig svona gegn Rússum eins og Bildt gerir nema að vera með sama æsing gagnvart Kosovo Albönum. Samkvæmt alþjóðalögum var Kosovo viðurkennt landsvæði innan Serbíu. Íbúarnir vildu flestir segja sig úr lögum við Serbíu. Það var gert við "fögnuð" flestra nema Serba. Þetta var auðvitað ekki mögulegt nema vegna innrásar NATO. Íbúar Suður Ossetíu vilja flestir ekkert með Georgíu hafa. Þeir hafa í raun stjórnað sér sjálfir frá hruni Sovétríkjanna. Serbar reyndu að berja niður uppreisn Albana í Kosovo. NATO greip inní við fögnuð íbúanna í Kosovo. Georgíumenn reyndu að brjóta niður sjálfstjórn Suður Osseta. Rússar gripu inn í við fögnuð íbúanna í Suður Ossetíu. Ef menn vilja ekki vera stimplaðir algjörir hræsnarar verða þeir að setja sama mælikvarða á þessi tvö dæmi.

Þetta eru auðvitað hroðalegar hörmungar og saklausir borgarar sem þjáðst mest vegna stríðs"leikjanna" eins og oftast. Crying


mbl.is „Rök Rússa sömu og Hitlers"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Guðmundur Auðunsson
Guðmundur Auðunsson

Vill leggja sitt af mörkum til að byggja upp nýtt samfélag jöfnuðar og réttlætis.

mummi[á]btinternet.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband