Leita í fréttum mbl.is

Flokkur til sölu

Fyrrverandi stórveldi meðal íslenskra stjórnmálaflokka, Framsóknarflokkurinn er til sölu. Flokkurinn er enn með nokkra kjörna fulltrúa, en þeir verða horfnir eftir næstu kosningar. Það eru því að verða síðustu forvöð fyrir flokkinn að komast að kjötkötlunum og eru flokksmenn því tilbúnir að styðja hvern þann sem vill til meirihluta. Verðið eru bitlingar, samstarfsflokkurinn getur valið öll stefnumálin.

Vinsamlegast sendið tilboð til Óskars Bergssonar, seinasta borgarfulltrúa Framsóknarflokksins í sögunni.


mbl.is Nýr meirihluti að fæðast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Guð hvað ég er sammála þér

Maður er komin með nett leið á þessum helv**** sandkassaleik hjá þessu fólki, hvað ætli sé búið að eyða miklum peningum í þetta rugl

ég segi bara kosning aftur takk fyrir 

María (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 14:37

2 identicon

Atvinnuhórur !

Stefán (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 14:47

3 identicon

Um hvaða Framsóknarflokk ert þú að tala.  Ég veit ekki betur en hann sé kjölfestan í mörgum bæjarfélögum út á landi og þér verður ekkert að ósk þinni með það hann eigi ekki áfram borgarfulltra í Reykjavík.  Flokkurinn fékk 6.1% síðast og þá var staglast á því að hann væri örflokkur, nú hann hefur þá verið það til fjölda ára því hann hefur verið með undir 8-9% alla jafna.  Þú vildir náttúrulega að þetta "show" sem verið hefur undanfarna mánuði í borgarstjórn Reykjavíkur héldi áfram  eða hvað?  Hvaða meirihluta átti að mynda þegar þessi óstjórn fer frá?  Ég gæti hins vegar verið sammála þér ef þú fullyrtir að þessi dæmalausi borgarstjóri væri búinn að vera í pólitík.  Nú er bara að henda Samfylkingunni útúr ríkisstjórn og mynda nýja stjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Frjálslyndra.  Þessir populistar í Samfylkingunni eru ótrúverðugir og ekki ríkisstjórninni til framdráttar.

ÞJ (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 15:14

4 Smámynd: Guðmundur Auðunsson

Framsóknarflokkurinn kjölfesta?! Og hvaða 8-9% fylgi í borginni? Á landsmælikvarða er flokkurinn með 8-9% fylgi en í borginni svona á 1-2% rólinu. Óskar kemst á spjöld sögunnar sem síðasti borgarfulltrúi Framsóknarflokksins. Má minna á að formaður flokksins náði ekki einu sinni kjöri í síðustu þingkosningum í borginni.

En vissulega getur verið að exbé fái mann kjörinn á Súðavík og Grenivík í næstu kosningum, en örugglega ekki í borginni. S fær 6 menn, V 4 og D 4, þar sem D heldur áfram að grafa sér gröf.

Guðmundur Auðunsson, 14.8.2008 kl. 21:24

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góður

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.8.2008 kl. 10:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðmundur Auðunsson
Guðmundur Auðunsson

Vill leggja sitt af mörkum til að byggja upp nýtt samfélag jöfnuðar og réttlætis.

mummi[á]btinternet.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband