Leita í fréttum mbl.is

Framtíðarleiðtogi Verkamannaflokksins?

Jæja, það var kominn tími til að menn reyni að feta sig frá skelfilegum tíma Tony Blair og þjónkunarstefnu hans við glæpastjórnina í Washington. Ég hef alltaf haft álit á David Miliband, tel að hann sé "laumu" vinstrisinni, sem lenti í vondum félagsskap. Miliband varð ungur handgenginn Tony Blair og sýndi honum ávallt hollustu, en ég tel að það hafi verið vegna þess að Miliband er pragmatisti sem komst þeirri (röngu) niðurstöðu að blairisminn hafi verið nauðsynlegur til að bjarga Verkamannaflokknum út úr eyðimerkurgöngu 9. áratugarins. Raunin varð hins vegar sú að Tony Blair og klíka hans gekk nærri því að flokknum dauðum. En það er fjarri því að Miliband sé kristilegur hægrimaður eins og Tony Blair og það er opinbert leyndarmál að honum leið illa undir utanríkisstefnuharmleik Blair, en var of hollur "guðföður" sínum til að gera það opinbert. Það er vitað að Miliband varð æfur þegar Blair studdi árásir Ísraelsmanna á Líbanon í fyrra, þó hann hafi einungis æst sig á ríkisstjórnarfundi. Það gefur Miliband sterka stöðu í þessu máli að hann er af gyðingaættum.

David Miliband er sonur eins merkasta marxíska fræðimanns Breta, Ralph Miliband og er það allavega von mín að eitthvað af róttækni föðurins hafi smitast yfir á soninn. Ralph Miliband lést árið 1994, jafn sannfærður sósíalisti og hann var alla sína æfi. Ralph komst við illan leik undan nasistunum frá Belgíu 16 ára gamall árið 1940 og settist að í Bretlandi og stofnaði þar fjölskyldu, meðan faðir hans gekk í Rauða herinn þar sem hann bjó í Varsjá. Auk David er sonurinn Ed á breska þinginu.


mbl.is Bretar fjarlægjast bandaríska utanríkisstefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Sveinbjörnsson

Er engin von til þess að hinu ólýðræðislega kosningakerfi ver breytt þarna hjá þér Bretlandi? Er það ekkert rætt?

Rúnar Sveinbjörnsson, 29.9.2007 kl. 20:36

2 Smámynd: Guðmundur Auðunsson

Rúnar, held að eina vonin til þess sé að það verði "hung parliament" í næstu kosningum. Stóru flokkarnir tveir vilja ekki breyta meðan þeir hafa möguleika á meirihluta einir.

Annars er það rétt hjá þér að þetta er mjög óréttlátt kerfi. Í síðustu kosningum fékk t.d. Tony Blair ömurlega kosningu, langt innan við 40% atkvæða. Samt fékk Verkamannaflokkurinn góðan meirihluta þar sem Íhaldsflokkurinn fékk enn ömurlegri kosningu! Svo má líka segja að Margaret Thatcher fékk mest 44% fylgi í kosningum, ávallt var meirihluti kjósenda mikið á móti henni. Hún var (eins og Davíð Oddsson á Íslandi) ýmist dáð eða hötuð og seinni hópurinn ávallt stærri.

Guðmundur Auðunsson, 1.10.2007 kl. 13:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Guðmundur Auðunsson
Guðmundur Auðunsson

Vill leggja sitt af mörkum til að byggja upp nýtt samfélag jöfnuðar og réttlætis.

mummi[á]btinternet.com

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband